skottuskrif

Wednesday, June 29, 2005

Stjörnuspár

Ég er farin að hallast að því að mamma skrifi stjörnuspána fyrir Moggann enda hlustar hún reglulega á röflið í mér. Nú þegar greiðsluseðillinn fyrir skólagjöldunum liggur á skrifborðinu og ferðalöngun mín er í hámarki hafa stjörnurnar verið óvenju næmar. Ég er skeptísk týpa en les stjörnuspána af gömlum vana og velti fyrir mér hvernig höfundur reynir að höfða til sem flestra. Svona hljóðar spá dagsins:
Ljónið myndi gjarnan vilja vera einhvers staðar annars staðar þessa dagana. Því finnst það þurfa að komast í burtu og í nýtt umhverfi. Fáðu útrás fyrir það með því að fara á nýjan stað.
Þessar setningar lýsa þönkum mínum afbragðsvel enda líður mér eins og ljóni í búri. Er löngu komin með upp í kok af landi og þjóð en finnst ég knúin til að klára skólann áður en ég fer út. Hvers vegna?? Jú það er skynsamast í stöðunni. Þoli ekki skynsemis og nytjahyggju en er fangi slíkra lífsgilda. Lifi eftir fyrirframskipuðum raunveruleika eins og ég eigi engra kosta völ. En við eigum alltaf val, við erum frjáls. Eins og margir þá varpa ég þessu frelsi fyrir róða. Af hverju? Jú það er auðveldara að láta hefðina skrifa lífssöguna en að gera það sjálf. Frelsi kemur á kostnað öryggis og óvissan er óþægileg. Þar af leiðir að nýtt umhverfi ljónynjunnar hlýtur að enda innan veggja búrsins. Kannski að ég fari í Fjarðarkaup en ekki Hagkaup næst þegar ég kaupi í matinn eða keyri nýja leið í vinnuna. Ég kemst ekki mikið lengra á milli vinnudaga en þegar ég útskrifast mun ég taka fyrstu flugvél út í óvissuna.



2 Comments:

  • At 7:14 AM, Blogger TaranTullan said…

    Þú kemur mér stöðugt á óvart Skotta með pælingum þínum og heimspekinni sem svífur yfir þeim.
    En annars á ég við svipað vandamál að stríða, þ.e. skynsemina. Hún getur verið ekkert smá pirrandi þegar manni langar að gera eitthvað allt annað. En svo aftur á móti verður maður að geta sleppt aðeins af sér beislinu, en þó aðeins ef kné fylgir kviði, því það er ómögulegt að ferðast með samviskubit um að maður eigi að gera eitthvað annað. Ef maður sér fram á svaka sammara í fríinu sínu, getur maður betur sleppt því.

     
  • At 12:03 PM, Blogger Skottan said…

    Ég veit þetta er rétt hjá þér Tulla. Það myndi naga mig allt ferðalagið ef ég klára ekki skólann fyrst. Svo finnst mér ég líka þurfa að eiga dágóðan varasjóð svo ég standi ekki á gati við heimkomuna.
    Stundum öfunda ég samt ligeglad fólk sem leyfir sér að segja " Þetta reddast"

     

Post a Comment

<< Home