skottuskrif

Sunday, June 18, 2006

Hljóðfæraleikarar

Staðreynd 1;
Af 6 manna fjölskyldu er mamma sú eina sem hefur lært á hljóðfæri, píanó.
Staðreynd 2;
Á heimilinu eru til eftirfarandi hljóðfæri;
  • tveir kassagítarar
  • rafmagnsgítar
  • Píanó
  • hljómborð
  • bongó tromma
  • munnharpa
  • harmonika
  • hristidót 1, veit ekki hvað heitir
  • hristidót 2, veit ekki hvað heitir
  • hristidót 3, veit ekki hvað heitir
Fyrsta staðreyndin kemur ekki í veg fyrir að hljóðfærin eru óspart notuð. Bræður mínir og pabbi grípa í gítarana og virðast sérstaklega duglegir eftir þætti eins og Það var lagið og Idolið. Feðgarnir eru óneitanlega músíkalskir enda þarf talsvert tóneyra til að pikka upp lög á gítar. Með þeim tilfæringum eru raddböndin svo þanin!!
Ég á eitt hljóðfærið á listanum, hljómborðið. Fékk það í afmælisgjöf á þeim tíma þegar mini hljómborðin voru hvað vinsælustu, þau gáfu undirspil og lýstu upp aðalnóturnar. Sem betur fer var lagalistinn stuttur, fæ hroll þegar ég heyri lögin. Nema hvað þá fannst pabba dótið svaka skemmtilegt og þar sem ég sýndi hæfileika(kunni að pikka inn lögin eftir hundruði skipta) var mér gefið the real thing. Fannst alltaf eins og honum langaði meira í gripinn en mér, svona svipað og þegar Hómer gaf Marge keilukúlu merkta sjálfum sér í afmælisgjöf. Þessi kenning mín fékk byr undir báða þegar Hemmi fékk rafmagnsgítarinn í jólagjöf!
Til að gera langa sögu stutta var ég álíka hljómborðsleikari og Ross í Friends, nema ég vissi að dæmið var vonlaust, I SENSED IT;-) Því miður eru aðrir fjölskyldumeðlimir ekki eins næmir. Því spyr ég, þarf Það var lagið ekki sumarfrí eins og aðrir þættir???

5 Comments:

  • At 5:34 AM, Blogger Oddrun said…

    Hvernig væri að hella sér í tónlistina og læra á eitthvað af þessum hljóðfærum við tækifæri, bara svona að gamni sínu?
    Geturðu ennþá ekki ´commentað hjá mér.
    Kveðjur.

     
  • At 6:47 AM, Blogger Naglinn said…

    En ógeðslega fyndið dæmi.
    Enginn kann á hljóðfæri en samt gætuð þið fjölskyldan sameinast á 17. júní og leitt skrúðgönguna sem Lúðrasveit Hreins.

     
  • At 4:08 PM, Anonymous Anonymous said…

    Þú hlýtur að eiga skemmtilegustu fjölskylduna á Íslandi.
    Kv anony.

     
  • At 6:06 AM, Blogger Oddrun said…

    Hvernig er þetta með þig ertu hætt að blogga? Er svona gaman í vinnunni?
    bloggkveðjur

     
  • At 10:22 AM, Blogger Skottan said…

    Jamm það er fínt í vinnunni. Annars er ég ótrúlega löt að hanga á netinu þessa dagana og því lítið um blogg. Ágætt að taka sér pásur inn á milli.

     

Post a Comment

<< Home