skottuskrif

Wednesday, June 14, 2006

CrazyLacy

Er ég sú eina sem fyllist óyfirstíganlegri leti í svona veðri? Nenni ekki ræktina, legg ekki í göngu og hryllir við sundi. Langar mest að skríða upp í rúm með bók en það er júníkvöld og klukkan er hálf 8. Er á kafi í Kite runner, ágætis lesning sem maður lærir af. Fæ líka fríar DVD og spólur á safninu og þar sem kona kaupir inn myndirnar er úrvalið ólíkt því sem bræður mínir eiga, mikið af drama og rómantík, þið vitið. Oh trúi ekki að ég sé að tala um imbadót, en þetta er svona varaplan ef veðrið í dag reynist lýsandi fyrir sumarið. Annars hef ég ekkert á móti rigningu og roki ef það styttir upp um helgar.
jæja þá er bara Hm rúmið og ræktin í fyrramálið.

1 Comments:

  • At 12:57 AM, Blogger Oddrun said…

    Nei þú ert pottþétt ekki sú eina sem fyllist leti, ég er í veikindafríi þessa viku og ég hef ekki gert neitt annað en að horfa á fótbolta. Guði sé lof fyrir HM

     

Post a Comment

<< Home