skottuskrif

Monday, December 19, 2005

HOME

Ferðin var í alla staði yndisleg. Góður matur, gott veður og síðast en ekki síst frábær félagsskapur. Hótelið var að mínu mati fínt þó ég svæfi á fangabedda;-) Ekki voru nú allir jafn sáttir enda standardinn mishár hjá fólki. En staðsetningin var svo góð að ég get ekki kvartað.
Daninn náði heldur betur að hægja á mér. A týpan varð að víkja og tölta í takt við fjöldann. Eini æsingurinn sem ég varð vör við var í löndum mínum í H&M. Fannst líka gott að geta klárað að kaupa jólagjafir án þess að fara inn í Moll! Mér líður nefnilega alltaf eins og kæstri skötu í Kringlunni fyrir jólin og ekki er hún stór.
Mikið eru Danir myndarlegt fólk, þeir voru ófáir snúningarnir sem ég tók. Skil ekki hvað Íslendingar eru að gorta sig. Íris gerði nokkrar tilraunir til að koma mér út við mikinn fögnuð nærstaddra. Mér var ekki skemmt:-)
Setti persónulegt met í hvítvíns og Baileysdrykkju ásamt möndluáti:-( Komst líka að því að ég kann ekki að dansa:-( Fórum á Salsa klúbb síðasta kvöldið og ég sver það við vorum stödd í Dirty dancing. Einhvern veginn tókst mér samt að snúa 2 metra háum manni í hringi. Lofaði herranum að snúa aftur að ári liðnu og vera þá búin að læra grunnsporin. En þetta var svo gaman!!!!
Ég held að Íslendingar séu ekkert sérlega vinsælir hjá Dönum í dag. Fyrsta kvöldið var fréttaskýringarþáttur í sjónvarpinu um innrás Íslendinga í Danmörku. Þátturinn var á neikvæðum nótum og spannaði allt frá Miss World til hugsanlegra kaupa á H&M. Baugsmálið, bankarnir, mikilmennskubrjálæði og jeppaeign var meðal efnis. Sem betur fer héldu allir að ég og Íris værum spænskar:-)
Eitt að lokum. Er heimkoma hápunktur utanlandsferðar? Fólkið mitt er alltaf svo fegið að komast heim. Ég veit ekki, kannski er ég svona skrítin því mig langar ALLTAF að vera lengur.
Jæja best að hætta þessu röfli.

9 Comments:

  • At 3:15 PM, Blogger Oddrun said…

    Takk fyrir ferðasöguna Svana mín og ég hefði sko alveg verið til í að "hygge mig ogsaa með jer" á Ströget og borða æbleskiver og mandler. En það er alltaf best að koma heim, mér finnst það hápunktur hverrar ferðar þó hún sé skemmtileg. Það var voða huggulegt í höfuðborginni en best var að komast heim í ´Hólminn

     
  • At 1:57 AM, Anonymous Anonymous said…

    Er það furða þó danskurinn sé uggandi?Litla Ísland,að kaupa upp Evrópu.E.t.v.eru þeir smeikir um að enda undir okkar stjórn.Gott að þér líkaði afslappelsið í Köben.Reyndar finnst mér þeir ágætir.Mandlerne þeirra himneskar,maturinn frábær kurteisin heillandi,tel að við gætum lært ýmislegt af þeim en þeir gætu líka lært það af okkur að allt er hægt ef viljinn er nægur.Svo er líka spurning hvort okkur líður eitthvað betur þó við sigrum heiminn?
    Kv anony.

     
  • At 2:40 AM, Blogger Oddrun said…

    Ég held að sumum í þessu þjóðfélagi líði ekki vel nema að hafa sem mest völd. Að mínu mati eru þessir menn ennþá með minnimáttarkennd gagnvart Dönum og mest er ég hrædd við að "öll" þessi útrás okkar Íslendinga endi illa

     
  • At 3:09 PM, Blogger Skottan said…

    Nei það er engin furða að þeir séu smeikir. Og eflaust finnst þeim sárt að sjá íslenska sveitunga sigla fram úr þeim. Ekki líður mér neitt betur þó að íslenskir peningakarlar kaupi allt sem verður á vegi þeirra.En eitthvað kikk fá þeir út úr þessu. Ég vona bara að þeir reisi ekki of háa spilaborg.
    Mér skilst að þessi þáttur hafi verið sýndur á Rúv í gærkvöldi.

     
  • At 1:23 AM, Anonymous Anonymous said…

    Velkomin heim senjoríta ;Þ

     
  • At 2:31 AM, Anonymous Anonymous said…

    Til hamingju þið allar sem eruð búnar með prófin ykkar. Mér þykir hugmyndin með salsadansinn góð.það á að ríkja gleði um jólin.
    Kv anony.

     
  • At 4:03 AM, Blogger Skottan said…

    Takk. Já það verður mikil gleði;-) Elín það eiga ekki allir kærasta sem virkilega kann að dansa. Annars ætti Siggi nú að geta hreift sig eitthvað eftir dansnámskeiðið í vetur;-)Ég er að fara á próflokadjamm á Pravda í kvöld með. Verður læknisfræðin þar líka??
    Og Anony þér er velkomið að koma á Pravda og stíga með okkur sporin:-)

     
  • At 5:53 AM, Anonymous Anonymous said…

    Aldrei að vita hvað eg geri,en salsa kann eg ekki.Get þó hreift mig í takt.
    Kv anony.

     
  • At 11:02 AM, Blogger Oddrun said…

    Svana þú skellir þér bara á dansnámskeið, auglýstu bara eftir hreifanlegum herra til að dansa við. Nýjar myndir af Karen Hörpu á blogginu mínu.

     

Post a Comment

<< Home