skottuskrif

Sunday, November 27, 2005

Kata Lisa

Breska listakonan Stella Vine málaði mynd eftir ljósmyndinni sem sýndi Kate Moss undirbúa snjósnorkið fræga. Málverkið er sýnt í galleríi í London. Stella þessi segir að það sé dirfska í augum kate og líkir henni við Monu Lisu. Er augndirfska Moss eitthvað annað en alkunna einkenni kókaín vímu? kannski hefur Monan barasta verið útúrreykt á því fræga málverki. Greyið Kate að láta góma sig. Maður ætti kannski að mála mynd eftir ljósmyndinni af Bubba sem gerði allt vitlaust í sumar. Nei annars ég teikna illa óla prik, og vil ekki lögsókn þannig að ég læt það eiga sig.
Snjókorn falla, á allt og alla, börnin snorka og skemmta sér, tralla lalla,.......

3 Comments:

  • At 7:51 AM, Blogger Oddrun said…

    Það er enn að koma mér á óvart hve blind ég er á þessa hvítu miðbæjarsnjókomu, ég tek aldrei eftir því hvort fólk sé stjarft af neyslu nema mér sé hreinlega bennt á það

     
  • At 12:52 PM, Blogger Skottan said…

    Jú jú Rúna mín það er allt á kafi snjó.
    Já eins og það sé ekki alvitað að supermodelin ganga á örvandi lyfjum annars myndu þær ekki hanga uppi.

     
  • At 10:44 AM, Blogger Skottan said…

    Það er reyndar búið að rannsaka misnotkun háskólanema á Rítalíni. Það hefur meðal annars komið í ljós að sumir þeirra gera sér upp ADHD til að fá uppáskrifuð lyf. Svo er bara vakað fram á nótt við lestur og athyglin í toppi. Ætli maður láti ekki óhóflegt Koffín duga.
    Og Elín
    A) þú stendur þig örugglega mjög vel í prófunum.
    B) Súpermódelin hafa ekki eins flottan rass og þú:-)

     

Post a Comment

<< Home