skottuskrif

Wednesday, December 21, 2005

Ég vil snjó, núna, núna ,,,,, NÚNA.
Er dauðleið á að hafa haustveður allt árið. Mig langar á skíði og snjósleða, búa til snjóbolta, snjóengla og snjókarla. Hvað varð um veðrið okkar???
Eruð þið að grínast með:
  • launahækkun þingmanna
  • forsíðufrétt DV
  • Kortagleði Íslendinga
  • Ný íslensk fjós
Svo er ég að vandræðast með jólalesninguna. Gat ekki að beðið til jóla þannig að ég fór á bókasafn í dag að leita að einhverju spennandi. Fór bókalaus út:-( Greinilegt að fleiri hafa ákveðið að taka forskot á sæluna.
Endilega komið með tillögur ef þið lumið á einhverjum gömlum góðum mola.

1 Comments:

  • At 3:29 AM, Blogger Skottan said…

    Hummm, við erum eins og þreyttar húsmæður;-) Annars er ég hálf fegin, sá þátt um Bob Dylan seint í gærkveldi sem ég hefði alls ekki viljað missa af(hjálp hvað þetta hljómar sorglega)En við trompum þetta í kvöld.
    Líst vel á bókina.

     

Post a Comment

<< Home