skottuskrif

Sunday, November 20, 2005

Leti!!!

Er að fara á fund í World Class á morgun í annað skipti síðan stöðin opnaði í Laugum. Nokkrir fastagestir koma þar saman og ræða hvað megi betur fara. Hef æft í WC í 8 ár en undanfarið hef ég verið alveg einstaklega löt, fer kannski á mánudegi og læt það duga út vikuna. Auk þess reyni ég að vera eins fljót og ég get, 20 mínútna sprikl, teygjur og út. Bara alveg hætt að nenna þessu. Samt er staðurinn þvílíkt flottur og vel hægt að hugsa sér að eyða heilum degi þarna í dekri. Ég held að málið sé að mig vantar einhverja áskorun, eitthvað markmið, ekki bara lyfta lóðum eins og heilalaus hálfviti. Er eiginlega ennþá fúl yfir að Bjössi vildi ekki skvass-sal í Laugum. Þegar ég lít til baka þá var skvassið í raun það eina sem mér fannst virkilega skemmtilegt þegar ég fór í ræktina. Það var áskorun og útrás að tapa fyrir öðrum, ég gat allavega lamið þá með spaðanum. Og markmiðið var auðvitað að verða betri og lemja fastar næst. Það verður að viðurkennast að hlaupabretti, stigvélar og róðurtæki hafa lítið skemmtanagildi:-(
Reyndar er eitt við Laugar sem mér finnst ókostur, allt er svo STÓRT, stórir gangar, stór brjóst, stór salur, stór brjóst, stór brjóst, stór brjóst, stór brjóst!!!! Það örlar nú á smá minnimáttarkennd, kannski að ég ætti að biðja um afslátt þar sem mín brjóst taka minna pláss!! Svona eins og að borga fyrir barnasæti í flugvélum;-)
Ég ætla allavega að halda áfram að væla um skvass-sal.

3 Comments:

  • At 3:03 AM, Blogger Skottan said…

    Já komdu í Laugar Auby, kannski að ég myndi nenna að fara með þér í tækin. Já segðu Tennis, ég hef aldrei prófað Tennis en held að það sé ógeðslega gaman. Er Nordica ekki algjör lúxus? Hef heyrt sögur af nuddurum í heitupottunum,mmmmmm.

     
  • At 7:16 AM, Blogger Oddrun said…

    Svana mín biddu bara um afslátt út á brjóstin, Bjössi kann að meta svona húmor. Ég er búin að heita mér því að byrja að æfa strax eftir áramót. Búin að biðja Berglindi að taka mig í einkaþjálfun, verð að losna við Reykleysiskílóin áður en ég spring og byrja aftur að reykja

     
  • At 6:46 AM, Blogger Naglinn said…

    Blessuð skvís,
    Hvað er ég að heyra um leti í ræktinni??? Skammastín bara!
    Málið er bara að setja sér markmið eins og að hlaupa hraðar, lyfta þyngra, tala við sæta gæjann eða eitthvað í þeim dúr.
    You can do it girl!!!
    Alveg sammála með brjóstin samt, við greyin sem erum eins og straubretti stingum frekar mikið í stúf við sílíkonsprengjuna sem sprakk í Laugum. Var hópafsláttur í sillur, ég bara spyr? Eða fær maður afslátt í boob-job út á Lauga-kortið sitt?

     

Post a Comment

<< Home