skottuskrif

Tuesday, January 02, 2007

Nýtt ár

Gleðilegt ár gott fólk.

Er hálf heiladauð eftir helgina en hamingjusöm í hjartanu. Á gamlák vaknaði ég brosandi eftir vel heppnað kvöld með vinum. EKKERT ÞUNN!!! Bröltandi á fætur áttaði ég mig hinsvegar á að ég var enn drukkin. Týndur sími og sárir ökklar, sígandi bros.
Átti samt yndislegt kvöld með fjölskyldunni. Góður matur, gott skaup og góðar bombur.
Góð helgi.

4 Comments:

  • At 3:41 PM, Anonymous Anonymous said…

    Gleðilegt ár Svansa mín, þú varst sofnuð þegar ég kom í Brekkugerðið á leiðinni í Grænuhlíðina. Þetta var meiri háttar kvöld og Íslendingar eru snarbilaðir þegar bombur og flugeldar eru annars vegar.
    Sjáumst Rúna frænka

     
  • At 5:43 PM, Blogger TaranTullan said…

    Vá, nú er ég sko aldeilis hlessa. Ég var búin að gefa upp alla von með þig og ekki búin að kíkja hingað í örugglega mánuð. En mér til mikillar gleði, ertu byrjuð að blogga aftur. En hvað það er nú gaman. Takk kærlega fyrir jólakortið og bestu kveðjur.

     
  • At 2:04 PM, Anonymous Anonymous said…

    Hæ skottið mitt, vildi bara kveðja er að fara á Kanarí í sólina á þriðjudaginn. bless
    Rúna frænka

     
  • At 6:55 AM, Anonymous Anonymous said…

    Haltu dampinum í skrifunum sæta, það er svo gaman að vangaveltunum þínum! Ég er ánægð með þig að vera komin aftur í gang með bloggið.
    Hélt ég væri að skríða undan jólunum... mætti heila tvo daga í verkefnið mitt, þung í haus í gær og sannfærði sjálfa mig um að ég væri veik í morgun, kvaddi kallinn úr dyrunum og skreið svo undir hlýja og góða sæng.. humm, hausinn í góðu lagi núna, eru þetta ellimerki eða bara hrein og bein leti?

     

Post a Comment

<< Home